|
Breytingar á stjórnun skólans næsta skólaár |
|
|
|
miðvikudagur, 14 júlí 2010 16:05 |
|
Kæru foreldrar og forráðamenn!
Eins og fram hefur komið mun ég fara í námsleyfi næsta skólaár og dvelja ásamt fjölskyldu minni í Ósló og stunda mastersnám í stjórnun. Jóhann A Kristjánsson mun gegna starfi skólastjóra næsta skólaár, Hildur Eggertsdóttir sem verið hefur deildarstjóri sinnir starfi aðstoðarskólastjóra og Ásta Ísberg, íþróttakennari, verður deildarstjóri. Megið þið eiga gleðiríkt sumar og ég hlakka til að hitta ykkur að ári liðnu. Skólasetning næsta skólaárs verður 23. ágúst og verður auglýst síðar.
Með kærri kveðju,
Dagný Annasdóttir skólastjóri |
|
|
Skólaslit |
|
|
|
þriðjudagur, 08 júní 2010 12:46 |
|

Skóla var slitið í dag með athöfnum í Fossvogskirkju, fyrst hjá yngri nemendum og síðar hjá þeim eldri. Að þeim loknum var gengið til skóla, snæddar pylsur í sumarblíðunni og nemendur og starfsfólk kvöddust. 15 nemendur útskrifuðust að þessu sinni, og voru þeir leystir út með gjöfum. Þá var þeim haldið kaffisamsæti á kennarastofu svo sem venja er við þetta tilefni. Myndir frá skólaslitum má finna í myndasafni, en einnig myndir frá gærdeginum, þegar verðlaun voru veitt fyrir íþrótta- og námsafrek.
Nemendur og aðstandendur þeirra hurfu svo á braut út í sólina, en starfsfólki skólans bíður nokkurra daga vinna í frágang áður en þeir halda einnig út í sumarið. Nemendum skólans, aðstandendum þeirra og starfsfólki er óskað gleðilegs sumars, og ánægjulegra endurfunda að því loknu. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 50 |