Nýtt úr skólastarfinu:
1. bekkingar fá hjálma Prenta Senda tengil
Höfundur: bthb   
föstudagur, 04 júní 2010 11:25

Nemendur fyrsta bekkjar fengu að gjöf hjálma sem félagar Kíwanishreyfingarinnar gefa þeim.
Myndin var tekin þegar Dagný Annasdóttir skólastjóri afhenti hjálmana og voru drengirnir í fyrsta bekk glaðir og ánægðir að fá þessa gjöf.

 
Vorhlaup Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 01 júní 2010 12:46

Hið árlega vorhlaup fór fram í morgun.  Hlaupinn var hringur við hinn nýja duftgarð ofan Fossvogskirkju.  Sól skein í heiði, þegar nemendur og starfsmenn hlupu hringinn eða hluta hans og þáðu verðlaunapening í lokin.  Var þessi stund hin besta skemmtun, eins og sjá má af myndum í myndasafni.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 4 af 52