|
Vorhátíð |
|
|
|
laugardagur, 29 maí 2010 12:47 |
|

Vorhátíð skólans var haldin í dag í blíðskaparveðri. Mæting var allgóð, en mikil skemmtidagskrá var í boði að vanda. Hárbandið flutti nokkur lög svo og söngkonan Íris Hólm. Þá voru alls kyns leiktæki á skólalóðinni, gestum boðið í reiðtúr, pulsur og drykki. Stóð hátíðin yfir frá kl. 11 til 13. Myndir frá skemmtuninni má finna í myndasafni. |
|
|
Útskriftarnemar á faraldsfæti |
|
|
|
föstudagur, 28 maí 2010 12:49 |
|

Um hádegisbil komu 10. bekkingar að skóla eftir frækilega útskriftarferð til Vestmannaeyja. Var hópurinn brúnn og sællegur eftir ferðalagið, en veðurguðir voru sérlega vinveittir að þessu sinni. Gist var í tvær nætur úti í Eyjum og reynt að skoða sem allra mest. M.a. var farið í Sprönguna, Náttúrugripasafnið, slökkvistöð bæjarins heimsótt, farið í sund og endað á ógleymanlegri sjóferð í gærkvöldi. Myndir úr ferðinni munu birtast í myndasafni fljótlega. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 5 af 52 |