Um Öskjuhlíðarskóla
Öskjuhlíðarskóli er sérskóli fyrir börn með þroskahömlun og fjölfatlaða á aldrinum 6 - 16 ára (skyldunám 1.-10. bekkur). Skólinn er einn af grunnskólum Reykjavíkur. Starf skólans byggir á lögum um grunnskóla nr. 91/2008, 17. grein aðalnámskrár grunnskóla og stefnu Menntasviðs Reykjavíkur um sérkennslu.
Hlutverk
Hlutverk skólans er:
Að veita börnum með þroskahömlun og fjölfötluðum nemendum kennslu og þjálfun við hæfi hvers og eins.Að veita starfsfólki annarra grunnskóla ráðgjöf og stuðning vegna nemenda með svipaðar þarfir og nemendur Öskjuhlíðarskóla hafa.
Markmið
Markmið skólastarfsins er að gera nemendur hæfa til þátttöku í samfélaginu á sem flestum sviðum eftir því sem geta þeirra leyfir og eru námslegar áherslur nánar skilgreindar í skólanámskrá. Á grundvelli hennar eru gerðar einstaklingsnámskrár og valin markmið og viðfangsefni við hæfi hvers nemanda.
Umsókn um skólavist í Öskjuhlíðarskóla (pdf - til útprentunar)
Hér má finna ýmislegt annað hnýsilegt um skólann, sem vert væri að skoða:
Viðhorf foreldra til skólans vorið 2008
Sjálfsmatsskýrsla 2008-2009
Umbótaáætlun 2008-2012
Viðhorf foreldra til skólans, mars 2010