Almennar upplýsingar

Um Öskjuhlíðarskóla

Öskjuhlíðarskóli er sérskóli fyrir börn með þroskahömlun og fjölfatlaða á aldrinum 6 - 16 ára (skyldunám 1.-10. bekkur). Skólinn er einn af grunnskólum Reykjavíkur. Starf skólans byggir á lögum um grunnskóla nr. 91/2008, 17. grein aðalnámskrár grunnskóla og stefnu Menntasviðs Reykjavíkur um sérkennslu.

Hlutverk

Hlutverk skólans er:

Að veita börnum með þroskahömlun og fjölfötluðum nemendum kennslu og þjálfun við hæfi hvers og eins.Að veita starfsfólki annarra grunnskóla ráðgjöf og stuðning vegna nemenda með svipaðar þarfir og nemendur Öskju­hlíðarskóla hafa. 

Markmið

Markmið skólastarfsins er að gera nemendur hæfa til þátttöku í samfélaginu á sem flestum sviðum eftir því sem geta þeirra leyfir og eru námslegar áherslur nánar skilgreindar í skólanámskrá. Á grundvelli hennar eru gerðar einstaklings­námskrár og valin markmið og viðfangsefni við hæfi hvers nemanda.

 

Umsókn um skólavist í Öskjuhlíðarskóla (pdf - til útprentunar)

 

Hér má finna ýmislegt annað hnýsilegt um skólann, sem vert væri að skoða:

 

Viðhorf foreldra til skólans vorið 2008

 

Sjálfsmatsskýrsla 2008-2009

 

Umbótaáætlun 2008-2012

 

Viðhorf foreldra til skólans, mars 2010