| Skólanámskrá |
|
Allir skólar eiga að setja sér skólanámskrá og skal hún vera í stöðugri endurskoðun. Kennarar, sérgreinakennarar, þroskaþjálfar og leikskólakennarar í bekkjarstarfi koma allir, ásamt stjórnendum skólans, að því að semja og endurskoða skólanámskrána. Starfsáætlun þessi er hluti skólanámskrár Öskjuhlíðarskóla. Skólanámskráin er aðgengileg á heimasíðu skólans: http://oskjuhlidarskoli.is. Vegna sérstöðu nemenda skólans er nám þeirra að miklum hluta einstaklingsmiðað þar sem tillit er tekið til fötlunar og mismunandi námslegra þarfa nemendanna. Slíkar einstaklingsnámskrár, sem eru hluti skólanámskrár, eru kynntar foreldrum og leitað álits þeirra á þeim í upphafi skólaárs. Gerðar eru námsáætlanir fyrir bekkjardeildir og hópa þar sem því verður við komið, m.a. í samfélagsfræði og sérgreinum. Einstaklingsnámskrár eru afhentar foreldrum en hópáætlanir fyrir bekkjardeildir eru aðgengilegar á heimasíðu skólans Skólanámskrá Öskjuhliðarskóla er í stöðugri endurskoðun, og eru foreldrar/forráðamenn hvattir til að kynna sér hana og koma með ábendingar um það sem betur má fara. 1. hluti: Almennar upplýsingar um skólastarfið. 2. hluti: Hlutverk, markmið og starfsemi. 3. hluti: Námskrá, markmið og inntak námsins. 4. hluti: Námsáherslur, kennsluaðferðir og reglur. |