|
Leiðarljósin okkar 1. Verum jákvæð. Það gerum við t.d. með því að: - hugsa í lausnum en ekki í hindrunum
- hafa gaman saman t.d. með hjálp skemmtinefndar
- hvetja og hrósa hvort öðru (notum H vítamínið!)
- byggja á styrkleikum okkar
- nota brosið og húmorinn í daglegu amstri
- tala jákvætt um vinnustað og vinnufélaga
2. Sýnum virðingu í samskiptum. Það gerum við t.d. með því að: - vera heiðarleg og hreinskilin, til að forðast baktal
- gagnrýna uppbyggilega
- beita virkri hlustun og virða skoðanir annarra
- vera sanngjörn og gera raunhæfar kröfur
- ganga vel um
- vera tillitssöm og sýna umburðarlyndi (sveigjanleika)
- vera stundvís og virða tímamörk
- taka vel á móti hugmyndaauðgi (frumlegum hugmyndum)
3. Sýnum trúnað og traust. Það gerum við t.d. með því að: - sýna fagmennsku og metnað í starfi
- vera stolt af vinnunni okkar
- vera virk í samstarfi
- hafa samstarfsvilja og sveigjanleika
- standa við sett markmið
- ræða málin og standa saman
- bæta okkur og verða enn betri
4. Miðlum upplýsingum. Það gerum við t.d. með því að: - vera skipulögð t.d. svo að fólk geti t.d. gengið inn í störf okkar í forföllum
- hafa skýra hlutverkaskiptingu og ábyrgð (skipurit)
- útbúa starfsmannahandbók
- hver og einn opni tölvupóstinn hvern dag
- að tilkynnt verði þegar starfsmenn fá leyfi t.d. sérgreinakennarar til að forðast undirmönnun
- koma nýjustu upplýsingum á framfæri á hvítu töflunni á kaffistofu
5. Sýnum kærleika og vinsemd. Það gerum við t.d. með því að: - taka þátt í gleði og sorg
- sýna umhyggju
- gefa afmælisgjafir og fæðingargjafir
- upplýsa og leiðbeina hvert öðru
- bjóða góðan dag og kveðja í lok dags
- vanda orðaval
- virða landamæri og þröskulda starfsmanna
- finna starfsmann mánaðarins!!!
- hafa vinaviku
|