Leiðarljós

Leiðarljósin okkar

1.    Verum jákvæð. Það gerum við t.d. með því að:

  • hugsa í lausnum en ekki í hindrunum
  • hafa gaman saman t.d. með hjálp skemmtinefndar
  • hvetja og hrósa hvort öðru (notum H vítamínið!)
  • byggja á styrkleikum okkar
  • nota brosið og húmorinn í daglegu amstri
  • tala jákvætt um vinnustað og vinnufélaga

2.    Sýnum virðingu í samskiptum. Það gerum við t.d. með því að:

  • vera heiðarleg og hreinskilin, til að forðast baktal
  • gagnrýna uppbyggilega
  • beita virkri hlustun og virða skoðanir annarra
  • vera sanngjörn og gera raunhæfar kröfur
  • ganga vel um 
  • vera tillitssöm og sýna umburðarlyndi (sveigjanleika)
  • vera stundvís og virða tímamörk
  • taka vel á móti hugmyndaauðgi (frumlegum hugmyndum) 

3.    Sýnum trúnað og traust. Það gerum við t.d. með því að:

  •  sýna fagmennsku og metnað í starfi
  •  vera stolt af vinnunni okkar
  • vera virk í samstarfi
  • hafa samstarfsvilja og sveigjanleika
  • standa við sett markmið
  • ræða málin og standa saman
  • bæta okkur og verða enn betri 

4.    Miðlum upplýsingum. Það gerum við t.d. með því að:

  • vera skipulögð t.d. svo að fólk geti t.d. gengið inn í störf okkar í forföllum
  • hafa skýra hlutverkaskiptingu og ábyrgð (skipurit)
  • útbúa starfsmannahandbók
  • hver og einn opni tölvupóstinn hvern dag
  • að tilkynnt verði þegar starfsmenn fá leyfi t.d. sérgreinakennarar til að forðast undirmönnun
  • koma nýjustu upplýsingum á framfæri á hvítu töflunni á kaffistofu 

5.    Sýnum kærleika og vinsemd. Það gerum við t.d. með því að:

  •  taka þátt í gleði og sorg
  • sýna umhyggju
  • gefa afmælisgjafir og fæðingargjafir
  • upplýsa og leiðbeina hvert öðru
  •  bjóða góðan dag og kveðja í lok dags
  • vanda orðaval
  • virða landamæri og þröskulda starfsmanna
  • finna starfsmann mánaðarins!!!
  •  hafa vinaviku