Útskriftarnemar á faraldsfæti Prenta Senda tengil
föstudagur, 28 maí 2010 12:49

Um hádegisbil komu 10. bekkingar að skóla eftir frækilega útskriftarferð til Vestmannaeyja.  Var hópurinn brúnn og sællegur eftir ferðalagið, en veðurguðir voru sérlega vinveittir að þessu sinni.  Gist var í tvær nætur úti í Eyjum og reynt að skoða sem allra mest.  M.a. var farið í Sprönguna, Náttúrugripasafnið, slökkvistöð bæjarins heimsótt, farið í sund og endað á ógleymanlegri sjóferð  í gærkvöldi.  Myndir  úr ferðinni munu birtast  í myndasafni fljótlega.