Vorhátíð Prenta Senda tengil
laugardagur, 29 maí 2010 12:47

Vorhátíð skólans var haldin í dag í blíðskaparveðri.    Mæting var allgóð, en mikil skemmtidagskrá var í boði að vanda.  Hárbandið flutti nokkur lög svo og söngkonan  Íris Hólm.  Þá voru alls kyns leiktæki á skólalóðinni, gestum boðið í reiðtúr,  pulsur og drykki.  Stóð hátíðin yfir frá kl. 11 til 13.  Myndir frá skemmtuninni má finna í myndasafni.