Umhverfismál Prenta Senda tengil

 Umhverfissáttmáli og stefna Öskjuhlíðarskóla

 Skólar á grænni grein

Öskjuhlíðarskóli er þátttakandi í verkefninu „Skólar á grænni grein“ á vegum Landverndar og hefur fengið Grænfánann sem er veittur skólum sem standa sig vel í umhverfismálum.  Skólinn fékk fyrst Grænfánann vorið 2006 og aftur vorið 2008.  Ólafur B. Ólafsson, tónmenntakennari skólans, hefur samið lag og texta um Grænfánann til þess að styðja verkefni Landverndar.

Sjá myndir og texta um Grænfánann.

 Lesið í skóginn - með skólum

Öskjuhlíðarskóli er einn af þátttökuskólum í verkefninu "Lesið í skóginn - með skólum", sem er samvinnuverkefni á vegum Menntasviðs Reykjavíkur og fleiri aðila.  Grunnnhugmynd verkefnisins er að efla skógarfræðslu í grunnskólum, og hefur Öskjuhlíðarskóla verið afhentur grenndarskógur í næsta nágrenni skólans í tengslum við það.  Grenndarskógurinn hefur hlotið nafnið Lundarskógur og hefur verið notaður sem vettvangur fyrir ýmis konar verkefni í skógi og um skóg.

Sjá myndir frá verkefni haustið 2008.

Skólavist

Skólavist er verkefni, sem unnið er í samstarfi við Hreinsunardeild Reykjavíkur, Sorpu og Menntasviðs Reykjavíkur.  Allir nemendur og starfsfólk hafa tvö síðustu skólaár tekið þátt í verkefnum varðandi orkunotkun og sorpflokkun.  Þetta skólaár verður áhersla lögð á pappírsnotkun og endurnýtingu.  Ólafur B. Ólafsson, tónmenntakennari, hefur lagt þessu verkefni lið með lagi og texta um orkunotkun.

 

Orkulagið. 
Við slökkvum ljósin, ljósin
þegar við förum út.
Við slökkvum ljósin, ljósin
þegar við förum út.  
Slökkvistjóri ekki hrökkva´í kút.
Slökkvistjóri ekki hrökkva´í kút,
slökktu ljósin og farðu svo út.
Slökktu ljósin og farðu svo út. 
Spörum orkuna, spörum peninga,
slökkvum er við förum út.

 

Skólaskógar

 

Öskjuhlíðarskóli hefur verið þátttakandi í skógræktarverkefni við Úlfljótsvatn í allmörg ár.  Verkefnið nefnist "Skólaskógar", og er fólgið í því, að nemendur og starfsfólk mæta árlega til þess að gróðursetja tré í ákveðnum ræktunarreit, sem skólanum var úthlutað.  Um er að ræða hálfan hektara lands í eigu Rafmagnsveitu Reykjavíkur, sem hefur yfirumsjón með verkefninu í samvinnu við Menntasvið Reykjavíkur.

 

Sjá myndir úr gróðusetningarferð haustið 2008.  Einnig í myndasafni.